Forritaraspjall hjá Umferðarstofu

Tuesday 27. October 2009 kl. 15:31

Ágætu forritarar á Íslandi og um veröld alla.

Við hjá hugbúnaðardeild Umferðarstofu höfum ákveðið að bjóða öllum áhugasömum mánaðarlega til forritaraspjalls í húsnæði Umferðarstofu við Borgartún 30.

Við viljum halda umgjörð viðburðanna fremur óformlegri og frjálslegri og er öllum boðið að mæta sem áhuga hafa á hugbúnaðarsmíði. Áhugasamir mega einnig gjarnan halda kynningar á málefnum tengdum hugbúnaðarsmíði, vilji menn deila með öðrum einhverju sérstaklega spennandi sem þeir eru að skoða eða vinna að hverju sinni.

Stefnan er að gera þetta fyrsta þriðjudag hvers mánaðar og fyrsti hittingurinn verður haldinn þriðjudaginn 3. nóvember næstkomandi kl. 17:00.

Á þessum fyrsta hittingi mun Hugi Þórðarson hjá Umferðarstofu sýna stuttlega hluta af opnum kóða Umferðarstofu. Hafi fleiri áhuga á að halda kynningar þá endilega sendið póst á Huga með tilkynningu þar um. Góð aðstaða er á staðnum, skjávarpi og pláss fyrir um 30 manns.

Hafir þú áhuga á að mæta ertu vinsamlegast beðinn að senda tölvupóst á Huga og tilkynna mætinguna sem fyrst.

Sjáumst á forritaraspjalli!


Comments

14:40 Thursday 5. November 2009 kl. 14:40
Fínn hittingu. Hugi fór yfir kynningu á starfi tölvudeildar US.
Umræður leiddust úr einu í annað og meðal annars væri áhugavert að skoða Hackystat.
Hugmynd kom upp að FSFÍ myndi halda utan um opinn kóða á Íslandi.

Express yourself!




Notify via email if someone posts a comment



Aðrir vefir Umferðarstofu