Wednesday 6. July 2011 kl. 13:52

Upplýsingaveitan færð á nýjann vefþjón

Á morgun, fimmtudag,  munum við færa vefþjónusturnar okkar á nýjann vefþjón. Notendur ættu ekki að verða varir við breytingar, það eina sem breytist er ip-talan á bakvið xml.us.is og ssl skírteinið. Nýja ip-talan er 157.157.42.110 og þjónustan er keyrandi þar.

Gamli þjónninn verður keyrandi fyrst um sinn meðan DNS breytingar skila sér til allra.

Endilega hafið samband ef þið eruð með spurningar.

Tuesday 7. June 2011 kl. 11:32

Villa löguð í basicVehicleInformation skeytinu

Við fengum ábendingu um að villa væri í basicVehicleinformation skeytinu hjá okkur.
Villan var sú að plötustaða var birt í geymslustað plötu <platestoragelocation>.

Villan hefur verið löguð þannig að nú verður gildi tómt ef <platestatus> hefur gildið "Á ökutæki".

Við biðjumst velvirðingar á villunni og þökkum kærlega fyrir ábendinguna.

Monday 2. May 2011 kl. 11:48

Seinagangur í morgun

Viss skeyti í vefþjónustunni hafa verið hægvirk í morgun, þetta orsakast af því að við náum ekki sambandi við Fasteignamatið til að fá uppýsingar um veðbönd, settum inn virkni sem kemur í veg fyrir að hver fyrispurn reyni að ná sambandi við FMR ef vitað er að að það er niðir. Hraðinn ætti því að vera orðinn eðlilegur.

Látið okkur vita ef þið eruð að lenda í vandræðum.

Tuesday 12. April 2011 kl. 11:08

Little reminder of the importans of good comments

Monday 11. April 2011 kl. 16:16

Upplýsingaveitan stöðugri

Undanfarna mánuði hafa staðið yfir betrumbætur á Upplýsingaveitunni með það að markmiði að gera hana stöðugri.

Helst er þar að nefna flýtiminnis viðbót og betri vélbúnað sem sett var í loftið í lok nóvember á síðasta ári, á með myndinni hér að neðan má glöggt sjá áhrif þess.

Uppitími Upplýsingaveitunnar

Næstu vikur er svo stefnt á að koma enn betra skipulagi á vefþjóninn og bæta við öðrum þjóni fyrir Upplýsingaveituna.

Vonumst við til að þessar breytingar verði til þess að við getum haldið stöðugum 100% uppitíma.